Fara í meginmál

Sjáðu hvar bókanirnar standa og af hverju.

Revenue OS sýnir hvort tímabilið er á réttri leið. Heartbeat sýnir hvað stoppar gestina á vefnum. Saman sýna þau hvað á að laga fyrst.

Revenue OSDemo Tours

Bókanir framundanmiðað við sama dag í fyrra

Heartbeat, vikuyfirlit

Gestir í síma gefast upp við dagsetningavalið.

Þetta skref missir 4 af hverjum 10 gestum.

Skýringarmynd. Fyrirtækið og tölurnar eru tilbúin.

Tvær spurningar í hverri viku

Revenue OS

Erum við á réttri leið?

Hver mánuður framundan borinn saman við sama dag í fyrra, eftir ferðum og söluleiðum. Þú sérð mánuð dragast aftur úr á meðan enn er hægt að bregðast við.

  • Bókanir framundan miðað við síðasta ár
  • Skipt eftir ferðum og söluleiðum
  • Ferðadagar sem fólk skoðar á vefnum
Nánar um Revenue OS

Heartbeat

Af hverju bóka ekki fleiri?

Heartbeat finnur hægar síður, smelli sem gera ekkert og skrefin þar sem fólk gefst upp, og segir þér í hverri viku hvað er best að laga fyrst.

  • Upptökur af raunverulegum heimsóknum
  • Vandamálin fundin fyrir þig, síðu fyrir síðu
  • Stutt yfirlit í hverri viku
Nánar um Heartbeat

Annað sýnir hvar vantar.
Hitt sýnir af hverju.

Dæmi úr einum mánuði.

  1. Revenue OS

    Mars eftir söluleiðum

    Vefurinn þinn−35%
    Endursöluaðilar+10%
    Samstarfsaðilar0%

    Mars er 12% á eftir sama degi í fyrra. Samdrátturinn er á þínum eigin vef.

  2. Revenue OS

    Ferðadagar í mars skoðaðir á vefnum

    Fólk skoðar samt dagsetningar í mars. Eftirspurnin er til staðar.

  3. Heartbeat

    Gestir í síma, af 100

    Velja ferð100
    Velja dagsetningu60
    Greiða55

    Í síma gefast 4 af hverjum 10 upp við dagsetningavalið.

  4. Revenue OS + Heartbeat

    Tveimur vikum síðar

    Komast í gegnum dagsetningavalið60 → 90 / 100
    Mars miðað við í fyrra−12% → −5%

    Þú lagar dagsetningavalið. Bæði sýna hvort það skilar sér.

Dæmi til skýringar, ekki gögn viðskiptavinar.

Fyrstu skrefin

  1. Bókun er tengd við Revenue OS og kóði Heartbeat settur á vefinn. Við gerum það með þér.
  2. Revenue OS byggir upp síðasta ár til samanburðar og Heartbeat byrjar að safna heimsóknum.
  3. Eftir fyrstu vikurnar förum við saman yfir tölurnar og veljum það fyrsta sem á að laga.

Gott að vita

Þarf ég hvort tveggja?

Nei. Hvort um sig stendur eitt og sér. Saman svara þau bæði hvað er að gerast og af hverju.

Við hvaða bókunarkerfi tengist Revenue OS?

Bókun. Ef þú selur í gegnum annað kerfi skaltu hafa samband og við skoðum það með þér.

Er þetta tilbúið?

Heartbeat er tilbúið til uppsetningar á vefnum þínum. Revenue OS er eftir boði á meðan við tökum inn fyrstu ferðaþjónustufyrirtækin sem nota Bókun.

Byrjum á einu samtali.

Segðu okkur hvaða mánuðir valda þér áhyggjum eða hvar þú heldur að vefurinn missi fólk.

Heartbeat er tilbúið til uppsetningar. Revenue OS er eftir boði á meðan við tökum inn fyrstu ferðaþjónustufyrirtækin.