Fara í meginmál

Frá Svartagaldri

Heartbeat

Sjáðu leiðina á bak við hverja heimsókn.

Heimsóknatölur segja að fólk hafi komið. Heartbeat hjálpar þér að skilja upplifunina á bak við tölurnar með upptökum af heimsóknum og hitakortum.

Skoða Heartbeat fyrir vefinn minn

Mælikóða þarf að setja upp áður en gagnasöfnun hefst.

Finndu augnablikið sem þarfnast skoðunar.

Skiptu á milli upptöku, hitakorts og nánari skoðunar. Þetta dæmi sýnir hvernig hegðun á vefnum getur leitt að betri spurningu.

HeartbeatGagnvirkt dæmi
Dæmi um heimsókn
nord.UpplifunUm okkur
Dæmi um ferðasíðu

Dagur sem situr eftir.

Óbyggðir. Litlir hópar. Ný sjónarhorn.

Finndu ferðina þína
Veldu dagGestirSkoða ferðir
Hermd heimsókn. Þetta dæmi skráir ekki heimsókn þína.

Veldu sjónarhorn

Fylgstu með heimsókninni.

Skoðaðu hvernig fólk fer um síðu eða ferli. Upptaka gefur teyminu leið til að skoða hik í samhengi.

Skýringarmyndir, engin raunveruleg gögn viðskiptavina.

Skoðaðu leiðina um vefinn

Notaðu upptökur af heimsóknum til að sjá hvernig fólk fer um síðu eða ferli og hvar það virðist hika.

Sjáðu mynstur á síðunni

Notaðu hitakort til að greina hvernig síðan er notuð og hvað væri gagnlegt að skoða betur.

Byggðu umræðuna á hegðun

Taktu raunverulega notkun með í reikninginn þegar efni, útlit eða notendaferð er endurskoðuð.

Fyrstu
skrefin.

Fyrir markaðs-, hönnunar- og vefteymi sem vilja sjá hvaða hlutar notendaferðarinnar þurfa nánari skoðun.

  1. Veljum síðurnar og samþykkjum uppsetningu mælinga.
  2. Söfnum gögnum eftir að mælikóðinn er kominn á vefinn.
  3. Skoðum upptökur og hitakort með ákveðna spurningu í huga.

Mælikóða þarf að setja upp áður en gagnasöfnun hefst.

Gott að vita.

Sýnir Heartbeat heimsóknir fyrir uppsetningu?

Nei. Mælikóðinn þarf að vera til staðar áður en söfnun getur hafist. Við sammælumst um uppsetningu og viðeigandi meðferð gagna áður en byrjað er.

Hvað þarf að gerast fyrir gagnasöfnun?

Við veljum síður og mælingar, setjum upp mælikóða og sammælumst um viðeigandi meðferð gagna á vefnum.

Segir upptakan hvers vegna gestur fór?

Hún sýnir hegðun en les ekki hugsanir. Við notum upptökur og hitakort til að móta spurningar og skoðum þær svo í stærra samhengi.

Gerum þetta
gagnlegt.

Byrjum á því sem þú vilt skilja eða gera betur.

Skoða Heartbeat fyrir vefinn minn