Fara í meginmál

Heimdall Beta

Sjáðu tímabilið áður en það kemur.

Heimdall les bókanir þínar úr þínu kerfi á hverri nóttu og setur það sem skiptir máli á eina síðu: hvað er bókað fram í tímann, hvar þú ert á undan eða á eftir síðasta ári, hvaða ferðir og markaðir eru á uppleið eða niðurleið, hvernig vefurinn stendur sig og hvaða verð keppinautar bjóða.

Heimdall er í beta-útgáfu. Hann virkar með Bókun, Caren og öðrum bókunarkerfum og les eingöngu: hann breytir aldrei bókunum, auglýsingum eða verðum. Skrá inn

Í dag lau. 28. nóv.

Bókað fyrir desember til febrúar

108,5 millj. kr. 11%miðað við um 122,0 millj. kr. á sama tíma í fyrra
025 millj. kr.50 millj. kr.75 millj. kr.100 millj. kr.nóv.des.jan.feb.marsapr.maíjúníjúlíágú.sep.okt.desember 202654,2 millj. kr.Í fyrra 62,3 millj. kr.−13% miðað við í fyrra

Vert að vita

  • Næstu þrír mánuðir virðast vera um 11% undir sama tíma í fyrra, aðallega á markaðstorgum.
  • 1.597 gestir fara í ferð næstu 7 daga.

Bókað síðustu 7 daga

14,8 millj. kr.um 4% minna en í fyrra

Bókanir síðustu 7 daga

412um 4% færri en í fyrra
Demo Tours er skáldað fyrirtæki og tölurnar eru ekki raunverulegar.

Á meðan þú sefur

Á hverri nóttu les Heimdall það sem breyttist og raðar því upp, svo svarið bíður þín þegar þú opnar hann að morgni.

  1. Les allar bókanir.

    Beint úr Bókun, Caren eða þínu eigin kerfi, með lykli sem hefur eingöngu lesaðgang. Ekkert breytist í kerfinu þínu.

  2. Bætir vefnum við.

    Hverjir komu, hvar þeir hættu í bókunarferlinu, hvaða dagsetningar þeir skoðuðu og að hverju þeir leituðu.

  3. Skoðar verð keppinauta.

    Verð fyrir fullorðna í sambærilegar ferðir, lesið á hverjum degi og sett við hlið þinna eigin.

  4. Ber allt saman við síðasta ár.

    Hver tala er borin saman við sama dag í fyrra og það sem hreyfðist er skrifað á mannamáli. Morgunyfirlitið er tilbúið.

Hver tala segir hversu traust hún er.

Staðfest, áætluð eða ekki mælanleg enn. Þegar ekki er hægt að bera saman við síðasta ár með sanngjörnum hætti segir Heimdall það í stað þess að giska.

  • MæltTalið beint úr bókunum eða af vefnum.
  • ÁætlaðReiknað út frá því sem vitað er; (i) við hliðina segir hvernig.
  • Ekki mælanlegt ennSagt hreint út, aldrei giskað.

Fyrstu skrefin

  1. Tengdu bókunarkerfið þitt með lykli sem hefur eingöngu lesaðgang. Við sýnum þér hvar hann er að finna.

  2. Hladdu upp bókunum síðasta árs úr kerfinu þínu, svo hver tala sé borin saman við sama dag í fyrra.

  3. Fyrsta yfirlitið er tilbúið innan sólarhrings. Bættu við Google Analytics og Search Console þegar þér hentar.

Tvær leiðir til að byrja

Hvað viltu?

Segðu okkur frá fyrirtækinu

Bókunarkerfi

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara þér. Þú skráist ekki á póstlista. Persónuvernd

Heimdall frá Svartigaldri: sjáðu tímabilið áður en það kemur | Svartigaldur