Mælingar tengdar við bókanir.
Kostnaður, bókanir og tekjur færð saman í eina yfirsýn. Þannig gat teymið séð hvaða herferðir voru að skila árangri.

Tröll Expeditions
Tröll fer með fólk á jökla, í íshella og í Silfru. Okkar verkefni var að hjálpa rétta fólkinu að finna ævintýrið sitt.
Svona unnum viðTröll hafði þegar byggt upp öflugt fyrirtæki. Næsta skref var að vaxa í mikilli samkeppni, með skýrari mynd af því hvar auglýsingaféð skilaði sér.
Við byrjuðum á grunninum: tengdum mælingarnar, einfölduðum herferðirnar og prófuðum okkur áfram.
Kostnaður, bókanir og tekjur færð saman í eina yfirsýn. Þannig gat teymið séð hvaða herferðir voru að skila árangri.
Óþarfa leitarorðum var fækkað og herferðir sameinaðar. Einfaldari uppbygging gaf Google Ads betri grunn til að vinna út frá.
Ólík auglýsingasnið, myndbönd og ljósmyndir voru prófuð. Breytingar voru metnar út frá kostnaði og bókunum, með tíma til að sjá hvað virkaði.
Það sem breyttist
Teymið fékk sameiginlega yfirsýn yfir kostnað, bókanir og tekjur. Ákvarðanir um næstu skref byggðu á því sem sást í gögnunum.
Vinnan hélt áfram með reglulegum tilraunum og betrumbótum. Mælingarnar urðu hluti af stýringu markaðsmálanna.
Næsta sagaPósturinn